
Sérgrein Egils þjónustuverkstæðis snýr að málmfyllingu eða málmsprautun til viðgerðar á ýmsum slitflötum í málmiðnaði.
Málmfylling hefur þá eiginleika, að í stað log- eða rafsuðu er viðkomandi hlutur laus við togspennu og sveigjumyndun í viðgerðarferlinu.
Dæmi um málmsprautun getur átt við um margskonar vélarhluti í mismunandi atvinnugreinum;
ýmiss konar öxla undir fastar legur, lausar koparlegur, fóðringar og þéttisæti.
Margar tegundir sveifarása, bæði legufletina og þéttisætin, línusæti knastása ofl.
Með þessari málmhúðunaraðferð er oftast hægt að gera við hluti sem annars væru ónýtir.

