
Á renniverkstæði fer fram rennismíði og fræsing á öllum tegundum málma og ýmsum plastefnum. Oft er það hluti af eigin framleiðslu eða íhlutir í stærri framleiðslu viðskiptavina.
Þá eru viðgerðir og endursmíði algengur þáttur þjónustunnar og tengjast oft stærri verkefnum, t.d. vélaviðgerðum eða fiskvélasmíði.
Renniverkstæðið er vel búið tækjum. Má þar nefna CNC framleiðsluvélar frá Gildemeiser og Zayer ásamt hefðbundnum rennibekkjum og fræsivélum, sérstök slípivél o.s.frv.
Í áraraðir hafa fagleg vinnubrögð einkennt rennismíðina hjá starfsmönnum EGILS þjónustuverkstæðis. Fjölbreytt rennismíðaverkefni ásamt þeim tækjakosti sem er til staðar á verkstæðinu gerir kleift að geta sinnt mjög svo breiðum hóp viðskiptavina sem snúa að rennismíði eða fræsun.

