Brussel-sýningunni lauk fimmtudaginn 5. mai síðastliðinn. Það má með sanni segja að vel hafi gengið fyrir EGIL á sýningunni enda heimsótti fjöldi manns bás fyrirtækisins. Mikið kom af fyrirspurnum og er virkilega gaman að hafa fengið tækifæri til að kynna bæði fyrir innlendum og erlendum sýningargestum þá framleiðslu og þjónustu sem EGILL hefur uppá að bjóða.

Mynd af sýningarbás EGILS á sýningunni í Brussel. Á myndinni eru Jón Ásbergsson framkv.stjóri Íslandsstofu, Berglind Steindórsdóttir starfsmaður Íslandsstofu, Þórir Ibsen sendiherra Íslands í Brussel, David Boon sýningarstjóri sýningarinnar & Freyr Friðriksson Framkv.stjóri EGILS.

Gestkvæmt var á bás EGILS. Á myndinni er Hlöðver Helgi Gunnarsson starfsmaður EGILS að kynna starfsemi EGILS fyrir aðila er heimsótti básinn.

