ForsíðaViðgerðirSmíðiHafa samband
Vélaviðgerðir


Sérgrein Egils þjónustuverkstæðis snýr að málmfyllingu eða málmsprautun til viðgerðar á ýmsum slitflötum í málmiðnaði.

Málmfylling hefur þá eiginleika í stað log- eða rafsuðu að viðkomandi hlutur er laus við togspennu og sveigjumyndun í viðgerðarferlinu.

Dæmi um málmsprautun getur átt við um margskonar vélarhluti í margskonar atvinnugreinum.
Ýmiskonar öxla undir fastar legur, lausar koparlegur, fóðringar og þéttisæti.
Margar tegundir sveifarása, bæði legufletina og þéttisætin, línusæti knastása ofl.
Með þessari málmhúðunar aðferð er oftast hægt að gera við hluti sem annars væru ónýtir.


Image


Í lok árs 2006 keypti Egill þjónustuverkstæði nýja hálfsjálfvirka slípivél frá AMC í Danmörku.
Þessi nýja slípivél býður viðskiptavinum okkar upp á nákvæmari slípun þegar kemur að slípun á sveifarásum, legusætum, prentvölsum, roðflettivölsum osfrv.
Þessi slípivél kemur sér afar vel þegar kemur að viðgerð á rúnuðum hlutum ásamt því að styðja við sérgreinina okkar, málmfyllinguna.

Image





Starfsmenn vélaverkstæðis:

Haraldur Guðjón Samúelsson
rennismiður , verkstjóri
Sigurbjörn Theodórsson rennismiður
Hilmar Blöndal Sigurðsson nemi í vélvirkjun
 
heimilistaeki.jpg lm_taeki.jpg rafmangs.jpg velavidgerdir.jpg
 
 
Sími 554-4445     Fax 554-4476